
Velkomin heim | Benjamín Gísli Einarsson
Benjamín Gísli Einarsson kemur fram í tónleikaröðinni Velkomin heim sunnudaginn 12. júlí klukkan 16. Tónleikaröðin er á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu. Tónleikarnir fara fram í Hörpuhorni, annarri hæð Hörpu. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin. Benjamín Gísli Einarsson er einn af fremstu jazzpíanóleikurum landsins og hefur vakið athygli fyrir sinn lagræna stíl, tilfinningaríka spilamennsku og fágaðan tón. Þótt hann sé jazzmenntaður nær tónlist hans langt út fyrir þá skilgreiningu—hún sameinar áhrif frá klassískri tónlist, kvikmyndatónlist og spunakenndum köflum í anda Keith Jarrets. Fyrir Benjamín er píanóið ekki bara hljóðfæri, heldur leið til að kanna nýjar hugmyndir, miðla tilfinningum og skapa tengingar við áheyrendur. Tónlistin hans er síbreytileg, liggur einhvers staðar á milli forms og frelsis, hefða og nýsköpunar, og er alltaf í leit að einhverju nýju. Eftir útskrift og framhaldsprófi í klassískum píanóleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Svönu Víkingsdóttur lá leiðin yfir í jazzinn og Benjamín lauk Burtfaraprófi frá MÍT 2019. Vorið 2025 lauk Benjamín Mastersprófi frá hinum virta Tónlistarháskólanum í Þrándheimi, NTNU. Meðfram náminu hefur hann verið virkur í bæði norsku og íslensku tónlistarsenunni, meðal annars með Bliss Quintet, Bento Box Trio og Tuva Halse Quintet. Árið 2023 sendi hann frá sér sína fyrstu plötu með tríóinu sínu, Line Of Thought, sem fékk frábærar viðtökur á erlendri grundu. Síðust ár hefur tónlistin tekið hann víða um Evrópu, komið fram á stórum djasshátíðum og klúbbum og unnið með mörgum af mest spennandi listamönnum á jazzsviðinu. Benjamín hefur hlotið hinar ýmsu viðurkenningar fyrir tónlist sína, þar á meðal semsem handhafi Árni Scheving minningarsjóðsverðlaunanna, sem veitt eru efnilegum íslenskum djassleikurum, tvívegis leikið til úrslita í Jazzintro, helstu samkeppni Noregs fyrir upprennandi jazzeikara, sem og lent í 2. sæti í Burghausen Young Jazz Awards. Hann er einnig meðstofnandi Fjordgata Records, plötuútgáfu í Þrándheimi sem gefur út upprennandi jazztónlistarfólk frá Noregi og Íslandi.
Loading artist info…