
Velkomin heim | María Sól Ingólfsdóttir
María Sól Ingólfsdóttir, sópransöngkona, kemur fram í tónleikaröðinni Velkomin heim sunnudaginn 26. júlí klukkan 16. Tónleikaröðin er á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu. Tónleikarnir fara fram í Hörpuhorni, annarri hæð Hörpu. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin. --- María Sól Ingólfsdóttir lauk nýverið meistaraprófi í söng frá Hochschule für Musik Saar en áður hafði hún lokið bakkalárgráðu í söng frá Listaháskóla Íslands árið 2019 og framhaldsstigsprófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 2016. Hún hefur einnig seinustu ár verið nemandi Haus of Shmizzay í New York. María Sól hefur komið fram á fjölmörgum tónleikum, tónlistarhátíðum og í óperuuppfærslum á Íslandi. Hún hlaut Grímuverðlaunin sem söngvari ársins árið 2021 fyrir hlutverk sitt í verkinu Ekkert er sorglegra en manneskjan eftir Adolf Smára Unnarsson og Friðrik Margrétar-Guðmundsson og árið 2019 hlaut hún verðlaun úr styrktarsjóði Halldórs Hansen fyrir framúrskarandi tónlistarnema. María Sól er virkur þátttakandi í menningarlífi Saarlands í Þýskalandi þar sem hún hefur verið búsett seinustu ár. Hún hefur sungið á öllum helstu tónlistarhátíðum í og við Saarbrücken, sem og við óperuna í Saarländische Staatstheater, og var þar að auki valin fulltrúi Richard Wagner-félagsins í Saarlandi á Bayreuth Festspiele-óperuhátíðina árið 2024. Meðal verkefna framundan er flutningur á Gurrelieder eftir A. Schönberg í Schönberg Center í Vín, tónleikar á tónlistarhátíðinni Musikfestspiele Saar í Schengen og hlutverk Konstanze í Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir W.A. Mozart í Bad Orb. María Sól Ingólfsdóttir heillar með kraftmikilli rödd og töfrandi framkomu. Hún trúir því að tónlist sé galdur.
Loading artist info…